Stefna okkar er að draga ennfremur úr eldsneytisnotkun Óskataks með tilliti til þess höfum við tekið í notkun 4 Hybrid gröfur. Flest öll tæki okkar eru nýleg og eyða því minna eldsneyti. Við notumst svo við eldsneytisskráningu í verkum okkar. Starfsmenn okkar eru meðvitaðir um að draga úr lausagöngu vinnuvéla og bíla.
Óskatak leggur mikið uppúr endurvinnslu og flokkun, allur úrgangur er flokkaður á viðurkenndan hátt og farið með hann á rétta staði til losunar. Við notumst einnig við forbrjót og hörpu við endurnýtingu á efni.
Við hjá Óskatak vinnum eftir ákveðnum verklagsreglum í sambandi við mengunarvarnir við vinnu með hættulegum eða mengandi efnum.
Við kaup á nýjum tækjum og bílum hugsum við mikið til umhverfisstefnu okkar sem er mjög skýr hún er að verða enn umhverfisvænni.